Skrifandi er: Tinna sem fer að verða fúl bara sko!!!
já þar sem enginn nennir að skrifa hérna, og ég er búin að missa allt contact við ykkur þá ætla ég bara að update-a þetta hér og nú!
BÖGG Á YKKUR:
ég hér með mana ferninginn til að skrifa hér!!!
ok ég fer að fara að jafn mig á þessu öllu saman :D
ANNARS var ekki málið að fara að drulla sér í sumarbústað, hvað erum við búnar að vera að plana þetta lengi?? ég meina, ég er laus þessa helgi??? hvernig er það, eruð þið ekkert lausar á næstunni???
jæja ég er hætt og segi bara ADÍJÓÓÓS!!!
Skrifandi er: ferningurinn sem er að yfirgefa okkur
tinna: ég er ekki að fi´la þetta, það eru bara allir að fara og það er EKKI kúl!!! ég er þá bar alíka farin heim og farin í fílu, bjarki er að koma og sækja mig og stelpurnar are no fun :(
kata: ég veit það ekki, já þær eru allar að fara heim.,.. uhum, af því þær eru bara að fara heim ég veit ekki... spurðu þær bara ég veit ekki...
ok kata virðist heldur ekki vera sátt... ekki superhuhl!!!!
þá bara kveð ég hér að sinni og skelli einum skítugum á veröldina sem er að yfirgefa mig!!!
Tinna fýýýla!!!

Skrifandi andi er: kati plati
jæja íslensku frændur nær og fjær.. passið uppá slátrið í þessari dimmu og köldu tíð!
ullarnæríur eru málið
Gleðilegan bóndadag :)
Skrifandi er: kata.. sem hefur rangt fyrir sér óóóójá
jæja, ehemm ég ætla bara að spilla því út..
....þetta var ekki draugur......
fékk það s.s. staðfest að þetta var MANNESKJA
og svo ræðum við þetta ekkert frekar :S
meira klúðrið... *dæs*

Skrifandi er: kati
ég er rangur kati.. á röngum tíma.. í vitlausu húúúsiii..
ÉG SÁ DRAUG og hana nú!
Það trúir mér enginn en ég sá hann/hana/eitthvað! Hann sagði ekkert heldur strunsaði út með sitt skítuga dökka liðaða hár í rauðum jakka og lokaði hurðinni á eftir sér.. og nei þetta var ekki "svefnhöfgaofskynjun"!
engar vísindalegar útskýringar á sjón minni í morgunsárið takk :Þ
Skrifandi er: Tinna aumingji!
JÁ stúlkur ég er í sjálfsvorkunnaraumingjaástandi í dag! ég er að drepast úr augnsýkingu og er ekkert búin að sofa (hence the augninfektsjón)
en svona burtséð frá allri aumkunn og vangefisskap þá hef ég akkúrat ekkert að segja.. þetta auga mitt tekur alla sköpunargáfu mína og traðkar á henni eins og valtari yfir brjóstahaldara!!
any whos, hvernig er það, var ekki eitthvað svona plan hjá okkur að halda svona GIRLSNIGHTOUT! yeah! nei þúst, það er gjörsamlega vonlaust að hitta á ykkur allar og þar sem karen tókst að brjóta sig þá virðist ekkert vera í augnsýn (nooo im not upsest with my eye infection *hehe*)
jæja ég er gjörsamlega andlaus í dag og er hætt...
bless og *GREEEEENJ*
Tinna
Little ittið með lag dagsins
Björk_JÓGA
all the accidents that happen
follow the dot
coincidence makes sense
only with you
you don't have to speak
I feel
emotional landscapes
they puzzle me
then the riddle gets solved and you push me up to this
state of emergency
how beautiful to be!
state of emergency
is where I want to be
all that no-one sees
you see
what's inside of me
every nerve that hurts you heal
deep inside of me
you don't have to speak - I feel
emotional landscapes
they puzzle me
confuse
then the riddle gets solved and you push me up to this
state of emergency
how beautiful to be!
state of emergency
is where I want to be
state of emergency
state of emergency
takk í dag, góðan dag og smint dag
því ekkert smint enginn koss og kók gefur tóninn
Skrifandi er: kata
endilega gott fólk.. skrifa undir..

http://www.deiglan.com/askorun
Skrifandi er: katarínaskínasvofína!
jæja alle hubba ur vuttefer :Þ
ég fæ áramót.. áraáramót.. ég fæ áramót.. lítil áramót.. ég fæææ áramót!
það er að koma gamlárs jeij.. ég og íra vorum sveittar fram eftir kvöldið að gera allt reddí fyrir gamlárs.. þrifum ALLT, hengdum upp þvílíkt mikið af jóló-allavega lit-seríum sem kom ótrúlega vel út.. meirað segja ljósasjóið sem lítur út eins og illgresi hafi verið að krassera þarna í marga mánuði útí horni - en það er íru-skoðun og endurvarpar engan veginn kötu-skoðun! :Þ
Gaman að gera gelskot í fyrsta skipti.. alltaf gaman að gera tilraunir á human tilraunardýrum múahhahaha. Neinei ekki svo slæmt, bara soldið sérstakt litaval, ég og íris höfum greinilega svona skrítinn smekk á hvað er lystugt.. eeeeða bara klaufar með matarliti :S
Tinnsan mín sem getur ekki verið með okkur á gamlárs því hún er að útlandast útí útlandinu fær smá gleðilegt-nýtt-ár-kötu-kveðju-:)-jeij..
GLEÐILEGT NÝTT ÁR TINNA KRÚS.. MISSIR AF GELSKOTUNUM.. GEYMI EITT.. KANNSKI.. JÚ GEYMI BESTA LITINN.. MÚHAHAHA.. NEI DJÓK.. GÓÐA SKEMMTUN KRÚSA.. BIÐ AÐ HEILSA BJARKA.. EKKI VERA OF DRUKKIN.. hvað er ég eiginlega að meina??.. AUÐVITAÐ VERTU OF DRUKKIN! :D have fun krús :)
katarínan
Skrifandi er: kata jólahjólabarn
"Leita af þéééér í ljósameeeeeergð
blablablablablaaaaaaaaaaaaaaa
HOOOOOORFÐU Í AAAAAAAUGUN Á MÉR!!!!! ÞÁ MUNU JÓÓÓÓÓÓLIN KOMAAAAAA!!"
ok man ekki alveg textann, en man hann þegar lagið poppar upp í útvarpinu skoooo.. :)
karen er sammála mér að þetta er BESTA jólalag í öllum aaalheiminum!.. nei kannski ekki en kemur mér alltaf í svo æðislegt jólahjólaskap :)
ég og karen höfum raulað þetta lag í ár og aldir, fengum æði fyrir þessu lagi þegar við vorum 17 ára að skúra í ógeðslega sleasy skrifstofu/lager - húsi hjá Holtagörðum um jólin. Þurftum s.s. að byrja í sitthvorum endanum til þess að vera sem fljótastar og öskruðum þetta lag alltaf "HOOOOOOOOOOOOOORFÐU Í AAAAAAAAAAAUUUUUUUGUUUUUUUN Á MÉÉÉÉR AAAAAAAÐ EEEEEEEIIIIIIILLLLLLLÍÍÍÍFUUUUUUUU" svo við vissum af hvor annarri, svo við vissum að enginn axarmorðingi sem ætlaði að ræna sér out of date heildsöluvörum hefði ekki rekist á okkur ;)
og vibba mýsnagildrurnar.. jakk jakk jakk.. það er ótrúlega vont að koma að músagildru, slímugri, og lítil hvít mýsla föst, tístandi og tístandi :( OK ekki jóló sorry.. gleymum mýsnum!
En Pésinn minn átti afmæli í gær 19. desember.. jeij!.. orðinn fimm ára.. jeij!.. fimm ár síðan.. WOW! ok ég er að segja ykkur það!.. tíminn hefur tekið einhverjum stökkbreytingum síðustu ár.. af hverju var tíminn ekki sona fljótur að líða þegar ég var fimm ára?.. þegar maður er búinn að ná 20 árum þá held ég að tímavíddin fari til fjandans hjá manni, dettur í hrað-gír :S
JÁ heyrðu!.. Bában kemur á morgun til íslands jeeeeeeeeeeij :D Get ekki beðið eftir að hitta kelluna :) hlakka úberdúber til að sjá þig dúlla :D
well well.. kata out!
Skrifandi er: ömurlegu stelpurnar
ehmm... við ömurlegu stelpurnar.. kunnum greinilega ekkert á þetta blogg þar sem ekki var skrifað að Katrín ósk hafsteinsdóttir ætti afmæli 12. des.
En já yndið okkar hún Kata átti nú samt afmæli í gær og varð 24 ára. Litla barnið okkar lang yngst af okkur öllum.
En já til HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KATA Í GÆR.....
kossar og knús
ömurlegu stelpurnar
p.s.. kann ekki að setja mynd inn á :(
Skrifandi er: ömurlegu stelpurnar
ehmm... við ömurlegu stelpurnar.. kunnum greinilega ekkert á þetta blogg þar sem ekki var skrifað að Katrín ósk hafsteinsdóttir ætti afmæli 12. des.
En já yndið okkar hún Kata átti nú samt afmæli í gær og varð 24 ára. Litla barnið okkar lang yngst af okkur öllum.
En já til HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KATA Í GÆR.....
kossar og knús
ömurlegu stelpurnar
p.s.. kann ekki að setja mynd inn á :(
Skrifandi er: Rena
Howdy girls.. en jújú.. ég verð hér hress og kát um áramótin... Lendi 29... svo þið sleppið ekkert við mig um áramótin.. MUAHAHAHHAAH....
en jújú.. það verður bullandi stuð um áramótin.. eins og alltaf :/.. ehm.. reyndar alltaf misheppnaðast djamm forever.. en hver veit.. kannski verður það öðruvísi þessi áramót ;).
En bækurnar kalla... (garg.. komin með ógeð á bókum, stöfum, prófum og skóla... )
See ya
Karen
Skrifandi er: kata jólaálfur
ég er ekki að geta keypt neinar jólagjafir! urrrr!
ég sé eitthvað sem mig langar að kaupa fyrir einhvern.. ætla að kaupa það en svo hugsa ég *neeeeeee hvað ef ég finn eitthvað annað?* ÞETTA ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÉG ÞARF ALLTAF AÐ HLAUPA OG KAUPA ALLT Á ÞORLÁKSMESSU! .. þetta er alveg fáránlegt, ég þarf eiginlega að ímynda mér að aðfangadagur sé bara núna á morgun og þá ætti ég að komast í rétta múdið.. þegar ég er alveg að verða alltof sein. ;)
jæja girlur.. ætlum við bara ekkert að hittast fyrir jól? :(
ég hef ekki hitt Tinnu síðan 19. nóvember klukkan 02:04:49 eftir miðnætti NÁKVÆMLEGA! :þ
og ekki hitt Renu síðan 6. desemeber klukkan 18:32:27 NÁKVÆMLEGA! :þ
og ekki hitt Írisi síðan ALVEG Í GÆR 8. desember klukkan 20:16:58 mjööög nákvæmlega! :Þ
en Tinna ef það nær því að við hittumst ekki í mánuð þá er þetta doomed! *væl og grátur!* engin tinna heldur um áramótin *þvíííílíkt innsog hor og læti!!* svo ef ég man rétt þá verður karen ekki heldur hér um áramótin en íris er að halda einhverju öðru fram.. en fyrst ég er "little miss know it ALL" þá hlýt ég að hafa rétt fyrir mér að hún sé að fara vera í Austurríki með Tollinum yfir jól og áramót.. er haggi? :Þ
Þá verður þetta bara ég og íris aaaaall aaaaaaalooooooneeee á litla skerinu.. haldandi á blysum.. reykjandi vindla og sötrandi flatt kampavín.. whhhhhhyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy?!!?!?!?!
nei djók.. það verður ógisslega gaman! haaaaaa íris.. komin í stuð!?! haaaaaaaaaaa!? heyri ekki ííííííí þéééééééér!??!
jæja farin að vinna :Þ
Skrifandi er: Íris Kaffaskinn
So, so you think you can tell Heaven from Hell, Blue skys from pain. Can you tell a green field From a cold steel rail? A smile from a veil? Do you think you can tell? And did they get you to trade Your heros for ghosts? Hot ashes for trees? Hot air for a cool breeze? Cold comfort for change? And did you exchange A walk on part in the war For a lead role in a cage? How I wish, how I wish you were here. We're just two lost souls Swimming in a fish bowl, Year after year, Running over the same old ground. What have we found? The same old fears. Wish you were here.
smá innlegg í tilefni dagsins
Skrifandi er: kata meistari rassasleikinga!
*ok.. kata að gera sig reddí fyrir serious ass licking*
en Tiiiiiiiiiiinna þetta er svo ógeðslega FLOTT mynd af þér! :D
Þú mátt ekki vera eigingjörn og ekki leyfa heiminum að njóta hennar líka :D
Og þú mátt ekki vera ILLgjörn og blinda heiminn með myndum af mér!
tinna krúsíkrúsíkrúúúúúúúúús :Þ
osssssssoBÓBÓ! - mússímúúúúúúússs
tókst my serious ass licking up? :)
Skrifandi er: Tinna bjralada!!!
ok im crazy and insanely ready to kill you kata!!!
madur setur ekkert svona myndir inn a thetta!!!
urg!!! biddu bara thangad til ad eg kemst heim i tolvuna mina, tha verdur einhver VIRKILEGA skemmtileg mynd af ther fundin og sett inn a thessa sidu!!! muahahahahaha
ja og iris, karen og bradum kata... VID ERUM SVO GAAAAMLAAAAR! meeeeen ...
oh bless!

Skrifandi er: katarínas
Tinna krús! - Til hamingju með afmælið :D
Ég var að skoða soldið skondna stjörnuspá.. ekki þessi venjulega.. blablabla.. heldur HRYLLINGSSPÁ úúúú..
ég sé HELLING sem á við mig allavega :Þ
Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kann ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.
á hlaupum úr einu yfir í annað.. jebbjebb.. erfitt með að þekkja takmörkin.. agalaus!.. ójá ég flý óþægindi eins og fjandinn væri laus!.. hæfileikar.. hvaða hæfileikar?? :D
en Tinna krús þetta var nú ekki skot á þig dúlla.. þú ert bara rabbabarayndibindi :Þ
Til hamingju með daginn krús! :)
Skrifandi er: katica BÍLABÖÐULL :Þ
jáháhá! núna er karen orðin árinu eldri.. núna þarf að finna til hrukkukremin og fara í upplyftinguna.. shiiiiiiit bara 9 dagar í það hjá mér :S ..farin að kvíða þessu dáááldið.
En ég má til með að segja frá hvað ég er mikill klaufi.. vitleysingu.. á ekki að snerta neitt sem viðkemur bílum.. og þá SÉRSTAKLEGA rafgeyma og startkapla. Núna er það orðin BIG nónó hjá Katicunni.
Ég var s.s. mjög saklaus með henni Þrusu í mat á fimmtudaginn.. við fórum í sakleysi okkar á Hlöllu tróðum í okkur einum slíkum báti og settumst síðan í (very soon to be KILLED) bílinn minn. Þá leyst nú girlunum ekki á blikuna því það var kveikt á rafgeymisljósinu og handbremsuljósinu. Auðvita hringdi ég í neyðarlínuna mína.. my daddio.. sem sagði mér bara að parkera bílnum og hann myndi líta á þetta seinna, hann var ekkert að skilja að þarna sátum við MILLI LÍF OG DAUÐA.. með kveikt á RAFGEYMISLJÓSINU!!!.. OG MAÐURINN HÉLT AÐ ALLT VÆRI Í LAGI!?!.. neinei við komumst heilar að höldnu aftur til Ogvoda nema mér fannst eitthvað vera aumt í honum hljóðið þegar ég var að loka glugganum.. eins og hann ætlaði bara að gefa upp öndina við svo erfitt verk.
Seinna um kvöldið fer pabbi með mér til að tékka á bílnum, ég reyni að starta og hann fer ekki í gang.. það kviknaði ekki einu sinni á pínulitlu sætu jólaseríunni minni! :( (ok ég er alltaf með miðstöðina í gangi á fullu, hitann í afturrúðunni, græjurnar og ljósin í mælaborðinu og auðvitað litlu sætu jólaserínu sem tekur nú ekki meira en 12v.. en kannski er það fullmikið fyrir þennan gamlingja sem ég á fyrir bíl :Þ)
Við pabbi ákváðum að starta eðaldruslunni með startköplum og geyminum í bílnum hans pabba. Pabbi þurfti að losa einhverja plasthlíf yfir geyminum svo ég var eitthvað hálf aðgerðalaus á meðan og byrjaði að leita að startköplunum. Fann þá og ákvað að flýta öööörlítið fyrir og tengja í rafgeyminn.. fyrst plús í minn geymi.. hmm pabbi ennþá að losa hlífina.. best að tengja þá mínusinn í minn líka.. og HÖLDUM síðan á hinum og stöndum fyrir aftan pabba og bíðum þangað til hann er búinn!!.. Mikið ferlega var mér orðið heitt á höndunum.. skrítið.. var ekki alveg að ná þessu.. byrjaði aðeins að pota í stálið og sona.. jújú mjööööög heitt.. skrítið.. pabbi snýr sér við.. rekur upp STÓR augu "KATRÍN hvað ertu að gera?!?!" og í forvitni minni afhverju hann var sona æstur SLÓ ÉG ÞEIM SAMAN! kom líka þessi bara ágætis neisti :Þ - ég held að pabbi hafi misst allt álit á mér sem manneskju með einhversskonar sjálfbjargarviðleitni þegar það kemur að bílum ;) .. eins og hann sagði best.. "kata.. láttu kjurrt!" svo það er bara akkurat það sem ég ætla að gera :)
En þetta eru álög sem mér fylgja þessa dagana.. bílar.. deyja.. ég er bara að sooooga úr þeim alla orku.. ég er RAFGEYMISORKUSUGA mánaðarins. Því hún Íris ætlaði að vera algjör dúlla og lána mér bílinn sinn yfir helgina á meðan hún væri á Akureyri.. buuuuut NOOO.. þegar Kata fór að ná í bílinn og ætlaði að starta honum.. auðvitað startaðist hann ekkert! ég meina þetta er nú einu sinni lukku-mánuðurinn minn!
einn lítill afmælissöngur fyrir Renu beibí í lokin..
KAREN Á AFMÆLI OG ÞAÐ Á HÚN NÚ OG ÞAÐ ER Í DAG
KAREN Á AFMÆLI OG ÞAÐ Á HÚN NÚ Í DAG
OG HEEEEEEYR NÚ HÉR EITT LAG VIÐ VILJUM "STARTA" HENNI
OG HEEEEEEYR NÚ HÉR HVERNIG VIÐ "STÖRTUM" HENNI
*brúúúmm....* *hóst* *hóst*.. *aumt hóst*...*daaaaaaaauðuuurr zzzzzzzz*
já sorry karen.. ég get ekkert startað neinu greinilega ;)
well búið að sinni.. ég læt bílana ykkar í friði :Þ
Skrifandi er: Íris wannabe brettagella
Já það eru greinilega margir að tjá sínar sálarkræsur hérna þessa daganna... sjáum hver fær medalíu. Ég er ekki haldin neinum svona sálarkreppum því ég er fullkomin......*hóst*
EN eníhús, sem er nýirði og þýðir Skíðaferð
ég er s.s að fara í eníhús um helgina JÍBES:D með vinnunni fle já minni hlakkar sumsé geht til .. étla alveg að meika það out við brekkurnar pissfull á bretti.. hef s.s einu sinni áður farið á bretti og sleikti þá stólaliftuna og fraus föst í 3 tíma ( dumb and dumber) éssvo klár jú nó. hringsólaði þar hring eftir hring þangað til vörður laganna tók eftir mér, hann sletti heitum pungi á kjaftinn á mér ooooog viti menn ég losnaði ósködduð að mestu.. fæ samt enþá martraðir, vonandi hitti ég hann ekki um helgina.
We just want you to fry our brain.... thats all ( R.I.P atli dk)
Skrifandi er: Tinnisch
já það er andskoti langt síðan mar hefur skrifað eitthvað hérna! enda er álíka langt síðan maður hefur SÉÐ ykkur!!!
hvernig er það, er ekki málið að fara að drullast til að hittast eitthvað allar saman??? höfum ábyggilega ýmislegt að segja ;)
já, annars eru nýjustu fréttir að TINNA ER AÐ FARA TIL BOSTOOON!!! 26 des til 4 jan!!! jeij og jibbí! þetta verða annars ömurleg jól hjá mér, ég verð að vinna 23,24 OG 25 desember! með öðrum orðum, ég verð á aðfangadagskvöld grenjandi einhversstaðar útí horni alein að vinna á barnum til eitthvað eitt eða tvö um nóttina :( kræst hvað það á eftir að vera ömurlegt!!!
jæja hætt í bili
bleh bleh

Skrifandi er: katica "ég reyki ekki"
já fjandinn.. ég er að reyna mitt allra ALLRA besta að hætta að reykja :(
Einhvernveginn þá er þetta aðeins erfiðara en ég hélt. Búin með 5 sígó í dag og klukkan er bara hálfsex!!.. en markið er að fara ekki yfir átta stykki á dag og vera bara completely reyklaus 1. janúar 2006! lítil beibísteps er málið :)
Fjólan mín minnir mig á það á hverjum degi að ég "reyki ekki" og ef ég segi það nógu fjandi oft þá fer ég að trúa því sjálf og skil ekkert í mér hvað ég er að gera með sígó í töskunni minni!.. alltaf gott að heilaþvo :) ..hlýtur að takast.. það eru ekki margar sellur eftir sem þarf að hafa áhrif á ;)
yfir og út!.. skipti!

TIL HAMINGJU KRÚSA MEÐ AFMÆLIÐ!!!
katarínus :)
Skrifandi er: katica tucker
jæja landi góður.. þá fer þetta að renna upp.. afmælisrússibani ferningsins JEIJ :)
Fyrst er auðvitað Koffíið okkar, haldiði að hún Írapíran okkar eigi ekki afmæli á morgun :D .. litla beibíið okkar að verða fullorðin.. *væl og skæl*.. tíminn líður svo hratt.. flýgur alveg framhjá manni.. man þegar hún var bara lítill sætur dvergur, trítlandi um götur borgarinnar, valhoppandi með slefandi sleikjó og tígóin sín.. eee nei ok mig hlýtur að hafa dreymt þetta.. ALLAVEGA stúlkukindurnar mínar, ætlum við að plana eitthvað sneddí í des og halda uppá þessa "merka" áfanga í lífi okkar eða bara láta alla gleyma því að við erum ekki átján lengur...? *flautiflauuuut* :Þ
Skrifandi er: katica depressing mooood
SuckySucky dagur, I have the bluuuues!
jájájájájá.. en nú er það á döfinni að skreppa til Faeore-Islands eða hvernig sem það er skrifað. Lutz og Helgi ætla að fara 11-18 desember eeeen ég er ekki að sjá mig alveg fyrir mér hangsandi í heila viku þar.. hvað þá eiga afmæli útí færeyjum :I - en samt kannski alltaf að prófa eitthvað nýtt er haggi? :D
Neinei.. ég fer líklegast bara eina helgi bara, mjám frá sona 16. og svo bara heim með þeim 18. des held að það sé plan :)
Maður heyrir svo góða hluti um þessar ponsueyjar, krúttaralegt fólk, brilljant rokkarar, síðan eru þær alveg ponsu litlar - "höfuðborgin" Þórshöfn rúmar alveg 15.000 manns! það er alveg góður Egilsstaður.. haaaa tinna ;) kjút kjút kjút kjút. Örugglega jólalegt.. ef ekki þá ætla ég just in case að taka með mér birgðir úr Ikea af jólaseríum og "fleygja" mér á eyjarnar með stææææl! :D
Færeyska, yndislegt mál, svo mikið að misskilja, eitthvað alveg fyrir mig!
Og svo langar mig svoooo mikið í sumarbústað aftur *blinkblink girlur* en karen er alltaf búin rétt fyrir jólamatinn á aðfangadag í prófum og írsaskvís ætlar að gera tilraunir að slá einhver alheimsmet í rennasérniðurbrekku-íþróttum, svo ætli sommerhásið verði ekki að bíða betri tíma.. kannski eftir áramót.. you never know :D
Skrifandi er: katica stjórnmálaþurs (??)
jáhám.. hvad for helvede?!..
takið endilega tröllaprófið ;)

Stjórnmálaþurs
Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.
Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.
Hvaða tröll ert þú?
Skrifandi er: Tinna hözzler
úff og arg hvað sumir eru flottari en aðrir! mmm...
í dag er ég slefandi tinna, tinna er glöð tinna og tinna er uuuubertinna!
wee! allavega ég hef þetta ekki lengra að sinni held ég, þar sem að ég er að horfa á dark city og að lifa mig inn í veröld the tunings!! muahaha, djöfull eru þeir samt svalir maður þessir massageðsjúklingar :D
allavega þarf að hætta núna er komin með heimsókn... bleh
Skrifandi er: kata skúnkur
jæja girlur.. hvað er svo næst á dagskrá?
maður verður alltaf að hafa eitthvað á dagskrá.. eitthvað til að hlakka til.. tilgangur lífsins kominn á borðið! ha! well ok allavega minn tilgangur ;)
hinn pointlessi tilgangurinn er að læra.. og það er það sem ég er að reyna að gera.. og gengur svona vel greinilega! ;) okokokok.. farin að læra :Þ
skúnk you later!
- svín eru fín jebbjebbjebb! -
kaffið talar
sofnaði aðeins.. og nú er fast á Bold..
eins og ég var að segja áðan..um sumó... þá var þetta alveg mergjuð ferð og við vorum alveg hel blekaðar mest megnis af tímanu.. það man ég.
Það var engum riðið í þetta skiptið.. ekki nema kannski hestum... að vísu voru hestarnir sem við hittum ekki miklar félagsverur.. svo ég get næstum fullvissað um það að það hafi ekki gerst neitt dirty.... annars var ég látin fækka fötum á ósanngjarn hátt í pottinum.. ÞAÐ er ljótt að láta mann gera svoleiðis... *%#/!&+1"%#*
og taka svo myndir af því.. SUmir voru æstari í þess konar myndartöku en aðrir!! nefnum engin nöfn;)
Maturinn var geggjaður; kata steikti geggjaðan humar í forrétt á laugardagskveldið *ummmmm*slef*og meira*ummmmm* og svo var það nautasteik og svín sem fékk að malla á grillinu ásamt jarðeplum. Blessuð sé minning þeirra. í lokin þá töfraði Karen fram 5 good looking bananas og sjövvaði oní þá marssúkkulaði.. þvílíkt og önnur eins snilld.. voff voff - ekki má gleyma rómanum í bananaendanum sem endaði mest öll á líkamanum hennar Tinnu:)
svo var bara spilað og leikið og spilað og leikið og drukkið og drukkið og drukkið meira..
Getekkibeðiðeftirannarisumarbústaðarferðmeðykkurstelpur:)
rock my green mind and paint it blue...
Íris Píris í Púkastuði
Jááááááá þessi bústaður var geggjaður og mergjaður og tremmasvalur.. eða það sem ég man af honum allavega..
Ég man eftir hestum og já líka klóakfýlu og vasaljósi
Skrifandi er: sjúskaða kata
SÍÍÍÍJÆÆÆÆÆSEEEEE
þetta var svakaferð.. úff!.. ég er enn þunn held ég barasta.. mjööög erfitt að vakna í morgun.
Og myndaflíngið.. stelpur.. HVERS VEGNA TÓKUM VIÐ MYNDAVÉL!? ég bara spyr!.. bara til að eiga hryllingsmyndir af kötu ha! jájájájá datt það svo sem í hug ;)
fucking fuck hestastóð.. rjómi.. POTTUR ALLUR Í RJÓMA.. stelpur ég held við þurfum að fara meira út sko.. ;)
Skrifandi er: kata alveg að deyja úr spenningi!
JÁ JÁ JÁ! ÞETTA ER AÐ FARA AÐ SKELLA Á!
ENGIN FORFÖLL ENN BOÐUÐ!! ÞESSI FERÐ SKAL FARIN! híhí :)
jeij bústaður here we come! :)
og pésalingur ætlar með í kvöld og svo skutlast ég með hann í bæinn á morgun svo hann geti hitt pabbaling og elínuling og ömmuling og afaling. Svo mikið lingaling í gangi!!!
happy days!!! jeij bústaður!
ok ég er að missa mig!.. back to work! :Þ
Skrifandi er: Tinna prófessúr
já það fer alveg að styttast í að við förum í þessa massífu sumarbústaðar *slash* heilasellumassmurder *slash* átfettish ferð okkar FERNINGSINS, já elsku veröld, ferningurinn verður sameinaður enn á ný og þríhyrningurinn er úr sögunni! jeij
annars kata, þetta plan sem við höfðum á föstudaginn *blikk blikk* við erum sko ekkert að fara að beila á því!!!
jæja ég ætla að fara að vekja írisi, við erum að fara að vera menningarlegar og fara eitthvað út, sjá aðra og sýna okkur, reyndar aðallega til að sýna okkur fagurgalana ;)
bless og bleh
Skrifandi er: "Íris *prump*"
kata svona á að skrifa það.. þegar maður leysir vind... munið eftir laginu.. "LEYSUM VIND.. TÖKUM TAPPANN OG DREKKUM AF STÚT"... Það er og verður mottóið fyrir þessa sumarbústaðarferð... ég skora á ykkur í eina alsherjar prumpukeppni.....
Regla nr. 1: Never talk about FartClub
Regla nr. 2: Always sing the "Magnus Stef" after Farting
En já .. allavega miðað við humarinn hennar Kötu ,Svínið hennar Tinnu og Laxinn hennar Karenar og Lúsina Jónas
oki vinnan kallar... skrifa meira seinna...
Skrifandi er: kata *hrmp*
æææi akkuru þarf karen að vinna á föstudaginn :(
well ég skal sjá til þess karen mín að þér verði hleypt mun fyrr úr vinnunni.. múhaha :Þ
Fer bara og verð einn af þessum óþolandi dópistum og geri allt crazy þannig að allir afpanti tímana sína.. híhíhí.. eða panta upp alla tímana, nota bara alla familíuna og hringja inn með mismunandi raddblæ..
JI dúdda svo er bába að fara *sniff* - krossleggjum fingurnar fyrir hana því hún er að fara í vísa-viðtal hjá aaameeericanos!
En já tinnsa og íra.. finnum einhverja brilljansí til að ná karen fyrr á föstudaginn ;)
adios amigas!
katarínas
Skrifandi er: kata búðarmaniac - alger killer!
jájá karen.. ef þú heldur að þú getir haldið aftur að mér well think again.. múhahaha :Þ
hehe ég verð að segja frá gullmola.. já við eigum lítinn sætan gullmola sem þarf bara einn lítinn bjóraling og þá vellir úr henni brilljansí-ið!
þessi krúsu gullmoli sagði.. "hey ef hún þarf að vinna frá fimm til sjö þá er hún alveg í (*talið á fingrum* fimm, sex, sjö..) 3 tíma!!" hehehehehehhehehehe.. heheh.. eeeeeeehh ok djók "góð saga ha" :Þ
sorry gullmoli! :)
ok en tinna hélt actually að ég væri að grínast með þennan matseðil minn.. forréttinn það er að segja.. i dont djók with food woman! :Þ
úff mér finnst ég svo miklu wise-ari núna heldur en fyrir 2 tímum síðan.. það sem ég lærði ekki af kaffihúsaferð með tveimur professorum í lífinu.. ég sem hélt að við værum bara homo sapiens.. nooo kata villimaður! rangt svaaaaaar! hehe bleeeeee.. farin að taka til!
katarínas
Skrifandi er: Rena
Já kata alltaf frekar stórtæk í matarvali...
miðað við þennan forrét á ég efni á kannski einni brauðsneið í aðalrétt og kókglas í eftirrétt... eins gott að ég komi með í búðina og haldi aftur af henni..... fock samt hvað það á eftir að verða erfitt... hafið þið tekið eftir því að þegar kata fer í matarbúð.. er eins og eitthvað snappi... góðu matarhugmyndirnar koma í kollinn á henni hver af annarri.. og áður en hún veit af er hún búin að fylla 3 körfur og keyra niður 3 gamlar kellingar í æsingnum í búðinni... hehehehehe ;)
og þetta var bara vægt til orða tekið.. muahahahaha.. neinei hún er nú ekki alveg svo slæm ;)
fyllir kannski bara svona 2 körfur og tekur 1 gamla konu niður í leiðinni ;)
En já finnst ykkur grillaðir bananar sem búið er að troða svona marssúkkulaði í gott? mér finnst það allavega ógeðslega gott :D
p.s það vantar svona broskalla í þetta blogg
Skrifandi er: katie-lyn tuuucker
god damn! mjáms góð helgi.. leið ágætlega hratt, of hratt :S
En stúlkur stúlkur! - ég er að farasta úr spenningi fyrir sumó!.. og við verðum að búa til eitthvað djúsí djúsí að eta á laugardeginum.
Það væri brill að byrja með óóótrúlega góðum humri með mozzarellaosti, basil, baquette og tómat. Síðan er ég svo ligeglad á aðalréttinn.. má vera me-me eða oink-oink eða mu-mu :)
Karla mu-mu væri nú allra best ;)
síðan er ég líka ligeglad á eftirréttinn - helst bara einhvern góðan kokteil ;) .. einn.. tvoooo.. þrjááá.. ... ... .. níutíu og átta.. níutíu og níu.. já ég get svolgrað og svolgrað ;)
Stelpur komiði með hugmyndir!!
*slef slef*
katarínas
Skrifandi er: katarínas
æi þetta er svo mikill bless dagur *sniff*
allir að fara frá manni *sniff* whyyyyyyyy gooooooood whyyyyyyyyyyy!! *angry instrumental music*
Bába að yfirgefa mann til the sunny Florida og svo bara fullt annað til að grenja vel yfir.
neinei.. gott gott góður dagur allir glaðir hey fadderí fadderallallaaaa
Well við erum að fara í kveðjupartí til hennar bábus sem maður á eftir að sakna svo mikið en she will be back! hún looofaði því.. hmm ætti kannski að fá hana til að skrifa á plagg dauðadrukkna í kvöld.. hmm thats a thought ;)
já en karen.. það er rétt hjá þér.. þú verður pynntuð beeeelive you me ég tek með mér sona "thingy" sem maður notar til að rugla í arin-eldinum man ekki hvað það heitir.. hálfgert sona skafti eða eitthvað þvíumlík.. aaallavega ég tek það með og læt það liggja veeeel í grillinu svo það sé auðvelt að ná í það ef ég sé eitthvað fararsnið á þér kelling.. kemst ekki langt.. múhahahhahahahaha
well farin aftur að vinna..
Skrifandi er: Karen BEST ;)
ok hæhó
VIÐ ERUM AÐ FARA Í SUMARBÚSTAÐ DAUÐANS... langar reyndar geðveikt að hætta við bara til að bögga kötu.. muhahahahahha
En neinei mar var bara tekinn og snúinn niður... og pintaður í 3 klukkutíma og látin skrifa undir eitthvað plagg sem ég hef ekki enn getað lesið almennilega... guð má vita hvað stendur á þessu plaggi.. en þær segja að ég hafi skrifað undir að koma í þenna bústað DAUÐANS.... svo ætli mar kíki ekki í smá stund...
Kannski verð ég vond og fer snemma á sunnudeginum í dagslanga kajak ferð vúhú... ef mar fær það er að segja að sofa eitthvað um nóttina... þær verða örugglega hoppandi á mér og láta mig skrifa undir fleiri plögg.. ef ég verð enn á lífi þá... CHRIST... i´m going to die.....
Neinei set bara eitthvað MJÖG róandi í síðustu glösin þeirra... svo ég fæ minn svefnfrið.. muhaha... og læt þær kannski bara skrifa undir eitthvað ;)
ok allt planað.. læt ykkur vita framhaldið eftir sumarbústaðinn ;)
Skrifandi er: brundslaufa DAUÐANS með crazy eyes from HELL
jáhahamm.. náðum við tinnsu til eyja.. NEI.. náðum við karen til eyja.. NEI
en ég og íris beiluðum ekki ooonei.. þetta var Geggjað with a capital G!..
já ég og íris skemmtum okkur ágætlega.. ágætlega suddalegar BUT no regrets!.. vona ég.. allavega ekkert sem ég man í augnablikinu og stranglega bannað að minna mig á það!
en næst á dagskrá hjá þessum blessaða "ferning" er að fara í sumarbústað.. ég ætla ekki að segja meir.. við erum allar búnar að staðfesta það að við ætlum að fara þannig að ég segi ekki meir.. ég er aaaalls ekki að gefa í skyn að það væri týpískt að það væri hætt við eða eitthvað nooooo.. ok neikvæðni farin, búin með hana :Þ jújú við erum allar að fara og ætlum að party-ast on eins og amma gerði með háleistana hneppta í næríunum!
ég var allavega að koma af Glaumnum.. sem er bara brill.. Hreimur úr land og sonum og Vignir úr Írafár að trúbbast, gerist ekki betra.. well ætla ekki að segja meir.. þetta átti bara að vera sona smá wake up call fyrir "ferninginn" að þessi blessaða sumarbústaðarferð verður farin no matter what! :Þ engin afsökun gengur upp! :Þ
adios amiga!
Skrifandi er: Tinnaaa
já það er sem sagt verið að reyna að ná mér til eyja, ég bara hreinlega hef ekki efni á því og plús það þá þarf ég að vinna... well það verður að hafa það... kata gottcha :)
annars er bara voða lítið..
Skrifandi er: Tinnaaa
Viðvörun frá lögreglu og karlaathvarfinu
Lögreglan vill hvetja alla karlmenn, einkum þá sem stunda næturlíf, ráðstefnur, jólahlaðborð og knæpur, til að vera vel á verði og afar varkára þegar kvenfólk býður upp á drykk.
Komið er á markaðinn stórhættulegt efni, svonefndur bjór" og er fjöldi kvenna farinn að nota efnið til þess að herja á menn sem eiga sér einskis ills von.
Venjulega er efnið í fljótandi formi og fæst nú næstum hvar sem er. Það er til á flöskum, dósum, úr krana og jafnvel í stórum kútum.
Kvensniftirnar nota "bjór" í samkvæmum og á börum til þess að véla karlkyns fórnarlömb heim með sér og í bólið. Venjulega nægir konunni að fá karlmanninn til að innbyrða nokkrar einingar "bjórs" og bjóða honum síðan heim til kynlífs án nokkurra skuldbindinga. Þessar aðfarir duga til þess að gera karlmenn gersamlega bjargarlausa.
Eftir neyslu margra "bjóra" kemur iðulega fyrir að menn falla í þá freistni að stunda kynlíf með kvenfólki sem þeir að öllu jöfnu myndu aldrei líta á. Að lokinni "bjórdrykkju" vakna karlmenn oft án þess að muna glöggt hvað gerðist nákvæmlega kvöldið áður, gjarna þó með sterkt hugboð um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað.
Stundum kemur það fyrir að þessir ólánsmenn eru dregnir inn í þekkta svikamyllu sem kallast "samband." Vitað er um tilfelli þar sem kvenfólki hefur tekist að hneppa karlmenn í langvarandi og alvarlega útgáfu þrældóms, refsinga og niðurlægingar sem kallast "hjónaband".
Að því er virðist eru karlmenn líklegri til að verða fórnarlömb þessarar svikamyllu eftir að kvenmaðurinn er búinn er að neyða í þá "bjór" og lofa kynlífi.
Vinsamlegast sendið þessa aðvörun til allra karlmanna sem þið þekkið.
Ef þið eruð þegar fórnarlömb þessa hræðilega nýja efnis, "bjórs", og kvenþrjótanna sem beita því er rétt að benda á sérstaka stuðningshópa karlmanna sem búið er að koma á fót á flestum þéttbýlisstöðum, en í þessum hópum má ræða sín vandamál á opinskáan og ærlegan hátt við karla sem margir hverjir hafa lent í þessum hremmingum.
Finna má þessa stuðningshópa í símaskrá víðast hvar undir heitinu Golfklúbbur.
Íraspírahillbillínaogkartöfluræktandi,þettaeralvegmagnaðað,ætlaaðtjekkahvortfólkhafiþolinmæðiíaðlesaþettaalltíbelgogbiðu
ekkimyndiéghafaþolinmæðiíþvíumlíktbullogcrap..enegætlaadfaraaðvinna..þaðerskomgeggjaðerfittaðítaekkiáspacetakkanntilað
gerabilámilliorðaváþettaermagnað,enkannskiættiégaðkomameðeinasögu..neibaraseinna
bleiris
Skrifandi er: kata
ég??.. full??
neee tinna þú ert að fara eitthvað mannavillt.. kvöldið hjá mér í gær var bara eins og öll venjuleg laugardagskvöld.. gera útsaum fyrir ríkissjónvarpinu etandin nýbakaðar vöfflur með sýróp
ok fine fine! ég steingleymdi því af sökum ofurölvunar :Þ
og jám.. margt annað sem ég er búin að gleyma sem ég held að sé bara best geymt þannig :S
síjæse!
Skrifandi er: Tintin
jæja svo kata ætlaði að skrifa eitthvað hérna...EKKI GET ÉG SÉÐ ÞAÐ!!! urr! well ekki það að ég sé hissa að hún hafi gleymt því, þú varst svoooo full!!! djísus mar, well im out..
blöð og fleiri blöð... hefti og fleiri hefti.. ég hef aldrei skemmt mér jafn vel hugsaði stelpan er hún kippti heftinu úr heftinu.. þetta er svo skemmtilegt apparat þessi heftakroppari. Hún horfði á viftuna.. "kannski ég ætti að kveikja á gæskunni" það er ábyggilega 30 stiga hiti hérna inni..ef ekki inni þá úti! heyrðist frá hænunni sem lá í makindum sínum undir skrifborðinu. hver er þá beljan hugsaði stelpan og klóraði sér í júgrinu.. tók viftuna úr sambandi spítti heftinu á gólfið og labbaði út...
já helmingur ferningsins er að fara að flytja saman...ásamt einum fyrrverandi, og ketti :) alveg meidjör blanda mar! :D
ég er sem sagt núna að reyna að ná í pabba til að fá hann til að hjálpa mér við að flytja rúmið and shit en hann bara vill auðsjáanlega ekki svara mér, helvískur :)
well ég ætla að halda áfram að reyna *reynireyn* og *svitn*
bleh, TINNAAAA
Ok hehe.. ég þurfti að fara í strætó í vinnuna í morgun.. og svo kemur einhver mamma með tvo syni sína upp í strætó... sem stoppar ekki kjafturinn á...bara mamma sjáðu þetta og sjáðu hitt og sjáðu þetta.. og af hverju mamma.. af hverju... and so on..
En ok það var svo sem bara frekar sætt ;)
En allt í einu stendur yngri strákurinn upp sem er bara svona 3-4 ára og öskrar.... HÆTTU AÐ REYKJA HÆTTU AÐ REYKJA.... bara geðveikt hátt og geðveikt dramatískt... HÆTTU AÐ REYKJA... segir þetta geðveikt oft og frekar móðursýkislega... En neinei þá stóð kall út á götu sem við vorum að keyra fram hjá í sakleysi sínu að reykja.. og krakkinn brjálaðist við þetta.
En já þetta var saga dagsins... ;)´
og lærdómur hennar var að krakkinn var á móti reykingum ;)
bæjó
karen
Já fjandans lyftan.... ég fæ enn martraðir ;)
karen
Djös djös djös veður! fjandans fjandi!
aldrei þessu vant langar kötu að vera úti.. já kraftaverkin gerast!.. á meðan þetta er ekki þýskalandsmiðsumarOFURhiti þá langar kötu actually að vera úti í góða veðrinu ;)
Ég er nú samt alveg komin í þýskalandsfílinginn.. er með risaviftu beint fyrir aftan mig í vinnunni og er ekkert að spara hana! ;) þá fær karen aftur flugvélamartraðir múhahahahha
well farin aftur að vinna..
katarínas
argh hahahaha, karen is gona DIE!!! skemmtu þér vel dúllan mín og við hinar skulum hugsa vel til þín meðan við bökumst í fallega sólskininu í sundi :) muahahahahaha
Ok ég er víst að fara í klippingu til stínu frænku á eftir... og ég fæ ekki að ráða neinu... eða well hún er að fara að lita mig... ohh... FOCKK.. MAGAKVÍÐAVERKUR
kv
karen klikk ;)
Stelpur... ég var að fatta að það er stutt vinnuvika... bara fjórir vinnudagar í þessari viku... ohhh... mér líður eins og ég hafi unnið í lottóinu ;) thíhíhí.
En annars er ég bara að vinna núna... voða voða voða gaman..hlakka samt til að klára að vinna og fara út í sólina... En tinna hvar ertu að vinna núna annars?
kv
karen
já gærkvöldið hefði getað orðið svo geðveikt en af einhverjum ástæðum þá ákvað tinna að fara eftir einhverju "samviskubits/góði samverjinn" dæmi og fór að hljálpa vin, aldrei þessu vant þá var ég í þvílíka massíva djammstuðinu og allt hefði getað leitt til þess að ég hefði getað djamma laaaangt fram á morgunn...fyrir þá sem þekkja mig þá er það "woooooow" en neeeeeeeiiii, djöfull er ég pisst.
oh well a friends gotta do what a friends gotta do... til þess eru þeir nú einu sinni :)
já og bye the way ef það er eitthvað geðveikt mikið að villum hérna þá er það af því að ég er með sýkingu aftur í auganu og er þar af leiðandi ekki með linsur og BLIND! djö..
well farin og bless
ok hæhæ
bara að prufa... á reyndar eftir að lesa allt sem þið hafið skrifað.... ætla að gera það núna...
jæja þá er ég búin að breyta og alveg sama hvað þú segir KATA damn you!!! þá ætla ég sko ekki að breyta þessu aftur!!! urr :)
bleeeeh
jæja þá er íra hérna komin til að þykjast vera voða klár á þetta blogg okkar :) bara svona prufa að skrifa eitthvað svo hún geti lært hvernig mar á að gera þetta :)
bless
úff úff!
við misstum tinnsuna okkar í HEILA TVO DAGA!!
en hún er komin aftur frá æi þið vitið staður á Íslandi.. næst Færeyjum.. oh man ekki ;) .. ósködduð og mjög viljug að koma á djammið á föstudaginn.. jeij!
(well tinna you better! *urr*)
sooooo.. sé you drunk and stupid tomorrow - jeij!
brundslaufa
jæja enn og aftur að prufa :)
Tinna's thoughts
jæja, þá er ég búin að ákveða mig,
one has to know and love him self to be able to know and love others...ég er nokkuð viss um að þetta stendur einhversstaðar og ef ekki þá stendur það þá núna.
ég er búin að ákveða að ég þarf að flytja út, ég þarf að búa ein með hugsunum mínum og mesta lagi einni stílabók. ekkert utanaðkomandi áreiti frá sjónvarpi eða tölvu, engir karlmenn! ég þarf að vera ein og ég þarf að kynnast mér. wow hljómar jú mikið rétt eins og dr phil en svei mér þá ef þetta sálfræði bullshit meikar ekki barasta svei mér þá heilmikið sens. í kvöld er ég búin að tékka eftir nokkrum stúdíóíbúðum og þarf bara á morgun að fara að leita almennilega.. verð auðvitað að vinna en byrja ekki fyrr en ellefu þannig að ég get hringt nokkrum sinnum um morguninn og svo nokkrum sinnum eftir vinnu.
ég dreymi frá lítilli kósí íbúð ekkert langt frá bænum, með rúmi, sófa, kannski einhverjum hillum og skrifborði..hellingur af kertum, og ég í miðjunni að teikna eða skrifa niður hugsanir mínar.
já vonandi hjálpar þetta mér eitthvað.
sjáum svo bara til hvernig gengur...
jæja þá er ég búin að setja einhverja mynd á þetta elsku blogg okkar, eeeelllskurnar mínar, lutz er farinn að sofa og ég heyri í ykkur á morgunn!
bara svona svo ég sjái hvernig þetta lítur út þegar maður er búinn að skrifa helling ætla ég að setja eitthvað shit hérna inn til að fá fullt fullt af texta sem meikar ekki shit sens :D ok bæ...
Ég geri ráð fyrir að vandfundinn sé sá Íslendingur sem ekki hefur heyrt eða séð á prenti, þessi ofanrituðu kjörorð Umferðarráðs gegn ölvunarakstri. Þau eru nokkuð komin til ára sinna en segja í hnitmiðuðu máli allt sem segja þarf um regluna góðu, að hafi menn smakkað vín eiga þeir ekki að aka. Mér var ljóst áður en ég lét þessi orð frá mér fara í fyrsta skipti að auðvelt væri að snúa út úr þeim og hvort sem menn trúa því eða ekki var það ég sjálfur sem fyrstur viðhafði útúrsnúninginn „eftir tvo – aktu svo", þótt ekki segði ég það á opinberum vettvangi. Málið er það að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að ef menn gantast með eitthvað sem gert er, eða ef menn nenna að gera grín að mönnum, þá eru umræddir einfaldlega að gera eitthvað sem skiptir máli. Sem dæmi um þetta get ég nefnt að í grínþáttum í útvarpi og sjónvarpi hef ég a.m.k. þrisvar eða fjórum sinnum verið ekinn niður og þá í gervi einhvers fáránlegs spyrils frá Umferðarráði. Þetta hefur aldrei haft hin minnstu áhrif á mig, m.a. af framansögðu, en ég viðurkenni að börnin mín áttu stundum bágt hér áður fyrr þegar sífellt var verið að drepa pabba þeirra. En þau uxu nú upp úr því blessuð.
hehe þetta passaði bara eitthvað svo fyndið, las reyndar ekki greinina en þúst hún er um ÁFENGI :D
Jæja stelpur...ÉG VAR FYRST!!! bara að prufa mig áfram svona eins og er.
weee...

